We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Úr ofbo​ð​i óv​æ​runnar

by Grafir

/
  • Streaming + Download

    Includes high-quality download in MP3, FLAC and more. Paying supporters also get unlimited streaming via the free Bandcamp app.
    Purchasable with gift card

      name your price

     

1.
Af æðri máttarvöldum þú læstur ert í hyldjúpum meinum; skilin milli heima lokast meir við hvert tog þitt í keðjurnar þær er saumuðu sárið sem eitt sinn gleypti veru þína Markaðurinn í dag selur lausnir sínar með álagningu Skuli hendi þín ná mér og sár þitt lokast við það, verðurðu þér loksina heimakær fangelsaður innan eigin rifbeina?
2.
Skriða 02:19
Kveikur að morgunvirkjum berst Kippir undan sólskinsábreiðum Endurtekið niðurbrot, hold fyrir bý Endurtekið niðurbrot, skolpleiðslur bresta í söng Fórnarlamb eigin tilvistar, hið aumasta dýr Sjónin beinist engu öðru að í varma sjálfskaparvítis Veggina skal skallað Sefjun blóma sem sjá enga sól í síki sínu Meinsemdarþrælar Sjálfinu skal hallað yfir strauma tímalínunnar sem stoppar aðeins fyrir þeim sem frá henni hverfa Bræði springur yfir áætlanir sem aldrei ágerðust Íþyngir skugganum, hamur sem öðlast eigið líf og eltir hvert sem haldið er miskunnarlaust sem ævarandi áminning fyrir hvað maður var
3.
Hraunbúi 04:38
Úr illa hirtu hreiðrinu fellur fiðurfirrtur umskiptingur Heimþráin skelfir þessa bækluðu skel þótt í sér skilninginn hún alltaf borið hafi Nú skal það gjört; Nú skal því breytt sem ekki samhæfist nótnaflæði æðanna Vegur blóðsins er umlukinn grimmum klóm löngu dauðra trjáa - En þó er sagt að hér finnist sæmdin sú sem leiftrar sálina tilgangsljómanum Að hún sé leidd í þau þúsund ár sem gangan tekur úr sálartetri dýrsins í gegnum gráustu þokurnar og tannhvöss hraun sem bíða engrar líknsemdar - Vígstöðvar reistar; Vonarsöfnuður kvelur upp varúðarkvein um ógn tómhyggjunnar Sitt sýnist hverjum hvað óttast skal, lífsgangan sjálf eða skortur henni á Af lífsgræðginni einni stefna þau sem heil geta talist að varma sólar - Sigurlaunin hillir í fjarska og hefur þar miskunnarlaust háð Andlegt stríð til höfuðs þeim sem í óráði sínu finna aðeins eigin dóm, eigin harðrétti; í eyru þeirra sem þráhyggjukenndir söngvarnir óma enn - Öll afdrepi undan kæfandi þokunni hverfa jafn skjótt og þau birtast hér svo þau virðast sem hin grimmasta lygi - Sigurlaunin hillir í fjarska og hefur þar miskunnarlaust háð Andlegt stríð til höfuðs þeim sem í óráði sínu finna aðeins eigin dóm, eigin harðrétti; í eyru þeirra sem þráhyggjukenndir söngvarnir óma enn, og ávalt hrífa - Handan þokunnar heyrist vonarglamur hinna fleygu sem af falskri von hafa afvegaleiðst en einhversstaðar verða þær að lenda Fluglaus fer hann aðra leið og kýs svefnsstað mánans sem sinn eigin - Nóttin fær senn sinn miskasvefn og dögunin vaknar þá er ég ekki finnst Komið þið að leiði mínu og sjáið mín bein, leyf þeim að liggja þar ein

about

The cassette release can be found on the Vánagandr distro.

credits

released November 19, 2015

license

all rights reserved

tags

about

Grafir Iceland

contact / help

Contact Grafir

Streaming and
Download help

Report this album or account

Grafir recommends:

If you like Grafir, you may also like: